Stundum þurfa gestir aukinn sveigjanleika. Ef gestir vilja breyta staðfestri bókun (eins og að bæta við nóttum eða fækka þeim, velja aðrar dagsetningar, bæta við eða fækka gestum) ættu þeir að senda þér breytingarbeiðni.
Þú ættir ekki að breyta eða fella niður bókanir fyrir hönd gesta þar sem það gæti haft slæm áhrif á stöðu þína sem gestgjafa. Láttu gestina frekar vita að þeir hafi kost á því að gera það sjálfir. Gestir geta einnig breytt bókun sinni í gegnum hlekkinn sem þeir fá í staðfestingarpóstinum.
Opnaðu skilaboðin á milli þín og gestsins og finndu sýna beiðni. Breytingarnar taka sjálfkrafa gildi ef þú samþykkir þær og mismunurinn verður annaðhvort innheimtur hjá gestinum eða endurgreiddur, eftir því sem við á.
Þú getur hafnað beiðninni ef breytingarnar ganga ekki upp fyrir þig. Ef þú getur tekið á móti gestunum með annars konar breytingum getur þú sent viðkomandi fyrirspurn í skilaboðum eða sent breytingarbeiðni.
Þótt engin tímamörk séu til staðar getur þú komið í veg fyrir afbókanir með því að svara breytingarbeiðnum sem fyrst.
Gestir geta sent breytingarbeiðni um leið og bókun hefur verið staðfest og allt fram að útritun, jafnvel meðan á dvölinni stendur.
Engin viðurlög eru við því að hafna breytingarbeiðni á ferð.
Það er góð hugmynd að láta gestinn vita að þú getir ekki orðið við breytingarbeiðninni og hvers vegna, til dæmis vegna þess að umbeðnar dagsetningar skarast á við aðar bókanir.