Airbnb tekur ábyrgðarhlutverki sínu gagnvart samfélaginu alvarlega, þar með töldum gestgjöfum, gestum, samstarfsaðilum og öðrum sem nota eða komast í kynni við verkvang okkar og þjónustu. Hluti af því að þjóna samfélagi okkar felur í sér að vernda vörumerki okkar. Við viljum ekki að samfélagsmeðlimir okkar eða aðrir séu í vafa um hvort eitthvað sé samþykkt af okkur, undir okkar stjórn eða umsjón eða hafi heimild okkar. Þessar leiðbeiningar eru hannaðar í því skyni að vernda vörumerki okkar og einnig til að hjálpa þér að miðla upplýsingum um Airbnb á ábyrgan hátt.
Þessar leiðbeiningar eru hluti af þjónustuskilmálum okkar. Með því að nota þjónustu Airbnb samþykkir þú þessar leiðbeiningar, þjónustuskilmála okkar og aðrar reglur.
Meðal vörumerkja Airbnb eru heiti Airbnb, kennimerki Airbnb, Bélo kennimerkið, merki ofurgestgjafa og merki Aircover ásamt öllum orðum, slagorðum, táknum, kennimerkjum, grafík, hönnun og öðrum vísunum sem auðkenna Airbnb, dótturfyrirtæki þess, þjónustu eða vörur. Við höfum lagt mikið upp úr því að allt sem við veitum þér sé í hæsta gæðaflokki og vörumerkið okkar endurspeglar þá viðleitni. Þess vegna leggjum við mikið upp úr því að vernda vörumerkin okkar með því að skrá þau og útlit vöru í Bandaríkjunum og um allan heim.
Þú mátt EKKI nota kennimerki Airbnb, kennimerki Bélo eða önnur vörumerki, kennimerki eða tákn Airbnb nema þú hafir formlegt og skriflegt leyfi frá viðeigandi viðskipta- eða lögfræðideildum Airbnb, Inc. Eina undantekningin er notkun orðsins „Airbnb“ innan tiltekinna marka eins og kemur fram í 2. hluta hér að neðan.
Þú mátt
Þú mátt EKKI
Dæmi
Húrra! | Nei… |
Eyjabústaður Palla | Airbnbifhjól |
Íbúðaræstiþjónusta Ljóma | Sólarbnb eða Bnb Sól |
Eyjarvin Önnu | BNB kennari |
rentmyskihaus.com | Reiðhjólabandb eða Reiðhjólab&b |
Reiðhjóla- og gistieignir | nicebnb.com |
STR Management Co | airstórhýsi |
Þú getur rætt um Airbnb (fyrirtækið) eða notað „Airbnb“ til að lýsa því sem þú ert í raun að bjóða. Haltu þig ávallt við eftirfarandi leiðbeiningar ef þetta á við um þig:
Þú mátt
Þú mátt EKKI
Þú mátt
Þú mátt EKKI
Dæmi
Rétt: Lýsandi og í samræmi við staðreyndir | Rangt: Ruglandi og misvísandi |
Við erum eignaumsýslufélag sem sérhæfir sig í skráningum á Airbnb | Við erum umsýslufélag Airbnb |
Við bjóðum upp á faglega hreingerningaþjónustu fyrir eignir á Airbnb | Fagleg hreingerningarþjónusta á Airbnb |
Ábendingar mínar um að gerast gestgjafi á Airbnb | Sérþjálfun fyrir Airbnb |
Ég hlakka til að taka á móti gestum á Airbnb | Við Airbnb-um húsinu okkar |
Ég sótti um starf hjá Airbnb | Við Airbnb-uðum þessu frábæra húsi |
Samfélagsmiðlahópur fyrir gestgjafa á Airbnb | Airbnb hópur [borgar/lands] fyrir gestgjafa |
Ef þú vilt auglýsa skammtímaútleigufyrirtæki þitt eiga ofangreindar leiðbeiningar einnig við um þig. Mundu einnig að vísa ekki til þín sem „Airbnb Management Company“ eða lýsa yfir „sérstöku sambandi“ við Airbnb sem myndi líklega rugla notendur í ríminu og fá þá til að halda að þú tengist Airbnb. Þú getur nefnt að þú hafir umsjón með eða þjónustir heimili sem eru skráð á Airbnb en Airbnb ætti ekki að vera í forgrunni á vefsíðu þinni eða öðru auglýsingaefni.
Ef þú ert með vefsíðu verður þú að birta áberandi fyrirvara á henni eins og eftir segir: „[Nafn fyrirtækis] er sjálfstæður þriðji aðili sem hefur hvorki sérstaka viðurkenningu eða tengingu við Airbnb, né tengist samstarfsaðilum þess.“ Ef þú ert með tekjureiknivél, samskiptaeyðublað eða önnur gögn frá notendum á vefsvæði þínu skaltu birta fyrirvarann þannig að hann sé vel sýnilegur fyrir neðan aðgerðahnappinn.
Samstarfsaðilar verða að hafa skriflegt leyfi til að nota vörumerki okkar. Ef þú hefur leyfi til að nota vörumerkin okkar þarft þú að fylgja nýjustu leiðbeiningunum um vörumerki frá tengilið þínum hjá Airbnb en viðkomandi getur einnig svarað spurningum varðandi þessar leiðbeiningar eða aðrar leiðbeiningar.